Verkefnisstjórn 5. áfanga
Verkefnisstjórn 5. áfanga rammaáætlunar var skipuð af Guðmundi Inga Guðbrandssyni, umhverfis- og auðlindaráðherra, í apríl 2021.
Í verkefnisstjórninni sitja:
- Jón Geir Pétursson, dósent við Háskóla Íslands, formaður, skipaður án tilnefningar
- Ása L. Aradóttir, prófessor við Landbúnaðarháskóla Íslands, skipuð án tilnefningar
- Guðrún A. Sævarsdóttir, dósent við Háskólann í Reykjavík, tilnefnd af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti
- Ólafur Adolfsson, lyfjafræðingur, tilnefndur af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti
- Agnes Stefánsdóttir, sviðsstjóri hjá Minjastofnun, tilnefnd af mennta- og menningarmálaráðuneyti
- Þórgnýr Dýrfjörð, forstöðumaður Akureyrarstofu, tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
Varamenn þeirra eru, í sömu röð,
- Jórunn Harðardóttir, framkvæmda- og rannsóknastjóri hjá Veðurstofu Íslands, varamaður formanns, skipuð án tilnefningar
- Róbert Arnar Stefánsson, forstöðumaður Náttúrustofu Vesturlands, skipaður án tilnefningar
- Andrea Sigurðardóttir, viðskiptafræðingur, tilnefnd af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti
- Ingvar Smári Birgisson, lögfræðingur, tilnefndur af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti
- Þór Hjaltalín, sviðsstjóri hjá Minjastofnun, tilnefndur af mennta- og menningarmálaráðuneyti
- Valgerður Rún Benediktsdóttir, lögfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
Starfsmaður verkefnisstjórnarinnar er Katrín Sóley Bjarnadóttir, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun (tók við af Herdísi Helgu Schopka í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti frá 1. september 2023).
Erindisbréf verkefnisstjórnar
Hér fer á eftir texti erindisbréfs verkefnisstjórnar, dagsett hinn 20. apríl 2021:
Umhverfis- og auðlindaráðherra skipar þig hér með aðalfulltrúa í verkefnisstjórn rammaáætlunar, sbr. 8. gr. laga nr. 48/2011 um verndar- og orkunýtingaráætlun, til næstu fjögurra ára.
Verkefnisstjórnin er þannig skipuð:
Jón Geir Pétursson, dósent við Háskóla Íslands, formaður,
skipaður án tilnefningar,
Jórunn Harðardóttir, framkvæmda- og rannsóknastjóri hjá Veðurstofu Íslands, varamaður formanns, skipuð án tilnefningar.
Ása L. Aradóttir, prófessor við Landbúnaðarháskóla Íslands, aðalfulltrúi,
skipuð án tilnefningar,
Róbert Arnar Stefánsson, forstöðumaður Náttúrustofu Vesturlands, til vara,
skipaður án tilnefningar.
Tilnefnd af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti:
Aðalfulltrúar:
Guðrún A. Sævarsdóttir, dósent við Háskólann í Reykjavík og Ólafur Adolfsson, lyfjafræðingur.
Varafulltrúar:
Andrea Sigurðardóttir, viðskiptafræðingur og Ingvar Smári Birgisson, lögfræðingur.
Tilnefnd af mennta- og menningarmálaráðuneyti:
Agnes Stefánsdóttir, sviðsstjóri hjá Minjastofnun, aðalfulltrúi og
Þór Hjaltalín sviðsstjóri hjá Minjastofnun, til vara.
Tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga:
Þórgnýr Dýrfjörð, forstöðumaður Akureyrarstofu, aðalfulltrúi og
Valgerður Rún Benediktsdóttir, lögfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, til vara.
Verkefnastjórn starfar samkvæmt lögum nr. 48/2011 um verndar- og orkunýtingaráætlun og hefur það hlutverk að vera ráðherra til ráðgjafar við undirbúning að gerð tillagna fyrir verndar- og orkunýtingaráætlun, sbr. 8.-11. gr. laganna. Markmið laganna er að tryggja að nýting landsvæða þar sem möguleikar eru á orkuvinnslu byggist á langtímasjónarmiðum og heildstæðu hagsmunamati, með sjálfbæra þróun að leiðarljósi. Verkefnisstjórnin fjallar um virkjunarhugmyndir og landsvæði í samræmi við beiðnir þar um og getur einnig endurmetið virkjunarhugmyndir og landsvæði gildandi áætlunar.
Samkvæmt lögum nr. 48/2011 ber verkefnisstjórn að skipa faghópa með sérfræðingum á viðeigandi sviðum til að fara yfir virkjunaráform og skal hún að fengnum niðurstöðum faghópa vinna drög að tillögum um flokkun virkjunarhugmynda og afmörkun virkjunar- og verndarsvæða. Að loknu samráðs- og kynningarferli og umhverfismati í samræmi við lög nr. 105/2006 ber verkefnisstjórn að leggja fyrir ráðherra rökstuddar tillögur um flokkun virkjunarhugmynda og afmörkun landsvæða.
Ráðuneytið leggur ríka áherslu á að verkefnisstjórnin starfi með þeim hætti að tryggt sé að almenningur hafi virka aðkomu og félagasamtök taki virkan þátt í öllu starfi við rammaáætlun.
Tillögum um flokkun virkjunarhugmynda og afmörkun landsvæða skal skilað til ráðherra innan fjögurra ára frá skipun verkefnisstjórnar.
Starfsmaður verkefnisstjórnarinnar er Herdís Helga Schopka, sérfræðingur í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu.
Ráðuneytin bera sjálf kostnað af sínum fulltrúum í verkefnisstjórninni, en laun fulltrúa Sambands íslenskra sveitarfélaga eru ákvörðuð af ráðherra.
Verkefnisstjórnin tekur þegar til starfa.Undirritað: Guðmundur Ingi Guðbrandsson, Sigríður Auður Arnardóttir
