Innsend umsögn

Nafn: Ragnhildur Sigurðardóttir
Númer umsagnar: 168
Landsvæði: Suðurland - Þjórsá (Vatnasvið)
Virkjunarhugmynd: Holtavirkjun (30)
Umsögn: Ég gerir jafnframt alvarlegar athugasemdir við tillögu til þingsályktunar um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, sem gerir ráð fyrir að virkjanir í neðri hluta Þjórsár, Urriðafossvirkjun, Hvammsvirkjun og Holtavirkjun, verði settar í virkjunarflokk. Ég tel að þær skuli settar í verndarflokk, til að vernda laxa- og sjóbirtingsstofna í ánni, en til vara að virkjanirnar verði settar í biðflokk á meðan rannsóknir hæfra og óvilhallra vísindamanna fari fram til að meta áhrif framkvæmdanna á einstakan laxastofn árinnar.
Fylgigögn: