Vettvangsferð verkefnisstjórnar, 13.08.2015

Skýrsla

Þátttakendur:

# Nafn Staða Þátttaka
1 Stefán Gíslason Formaður verkefnisstjórnar Allan tímann
2 Elín R. Líndal Fulltrúi í verkefnisstjórn Allan tímann
3 Helga Barðadóttir Fulltrúi í verkefnisstjórn Allan tímann
4 Hildur Jónsdóttir Fulltrúi í verkefnisstjórn Allan tímann
5 Ólafur Örn Haraldsson Fulltrúi í verkefnisstjórn Allan tímann
6 Þóra Ellen Þórhallsdóttir Fulltrúi í verkefnisstjórn Allan tímann
7 Linda Georgsdóttir Orkustofnun Allan tímann
8 Skúli Thoroddsen Orkustofnun Allan tímann
9 Árni Jón Elíasson Landsnet Allan tímann
10 Árni Finnsson NSÍ Allan tímann
11 Guðmundur Ingi Guðbrandsson Landvernd Allan tímann
12 Snorri Baldursson Landvernd Allan tímann
13 Steinar Kaldal Landvernd og NSÍ Allan tímann
14 Hákon Sigþórsson Guðmundur Tyrfingsson ehf. Bílstjóri

 

Auk þess tóku þátt í ferðinni:

# Nafn Staða Þátttaka
15 Kristófer A. Tómasson Sveitarstjóri Skeiða- og Gnúpverjahr Árnes
16 Helgi Bjarnason Landsvirkjun Frá Árnesi
17 Rúnar Friðgeirsson Eflu Frá Árnesi
18 Björgvin Skafti Bjarnason Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahr F. hádegi
19 Ragnar Magnússon Oddviti Hrunamannahrepps F. hádegi
20 Halldóra Hjörleifsdóttir Sveitarstjórn Hrunamannahrepps F. hádegi
21 Jón Valgeirsson Sveitarstjóri Hrunamannahrepps F. hádegi
22 Helgi Kjartansson Oddviti Bláskógabyggðar Flúðir
23 Valtýr Valtýsson Sveitarstjóri Bláskógabyggðar Flúðir
24 Kolbrún Haraldsdóttir Sveitarstjórn Hrunamannahrepps E. hádegi
25 Þorsteinn Loftsson Landbún.nefnd Hrunamannahrepps E. hádegi

 

Eftirtaldir virkjunarkostir voru skoðaðir:

  • R3141A Stóra-Laxá
  • R3134A Búðartunguvirkjun       

 

Leiðarlýsing:

Fimmtudagur 13. ágúst:

Ekið var frá Reykjavík að morgni að Árnesi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Þar var haldinn stuttur og óformlegur fundur og farið yfir yfirlitsteikningar af fyrirhuguðu virkjunarsvæði við Stóru-Laxá. Þaðan var ekið að Skáldabúðum og inn Flóamannaafrétt inn undir Hallarmúla, þaðan sveigt upp að áformuðum stíflum Illaverslóns, tilhögun fyrirhugaðrar virkjunar í Stóru-Laxá kynnt og síðan ekið til baka að Árnesi og þaðan að Flúðum þar sem snæddur var hádegisverður og fundað óformlega með fulltrúum Bláskógabyggðar. Frá Flúðum var ekið upp Tungufellsdal og austur línuveg að Helgaskála og fyrirhuguðu stíflustæði þar fyrir neðan. Á bakaleið var ekið að Laxárgljúfrum við ármót Stóru-Laxár og Leirár. Þaðan var ekið til baka vestur línuveginn og horft af Miðmorgunshæð yfir fyrirhugað virkjunarsvæði Búðartunguvirkjunar. Vegna veikinda gátu fulltrúar Íslenskrar vatnsorku ekki tekið þátt í ferðinni og fulltrúar hönnuða (Verkís) höfðu ekki tök á að koma á staðinn með svo skömmum fyrirvara. Loks var ekið að Flúðum og þaðan áleiðis um Skeiðaveg og Selfoss til Reykjavíkur.

 

Dagskrá:

08:00-09:30         Ekið frá Reykjavík að Árnesi

09:30-10:00         Óformlegur fundur í Árnesi

10:00-11:00         Ekið að Illaveri

11:00-11:30        Kynning á tilhögun virkjunar

11:30-13:00        Ekið að Flúðum með viðkomu í Árnesi

13:00-14:00        Hádegisverður á Flúðum, óformlegur fundur

14:00-15:00        Ekið upp Tungufellsdal og að Helgaskála, fyrirhuguð mannvirki þar kynnt

15:00-16:00        Ekið að ármótum Stóru-Laxár og Leirár og aðstæður þar skoðaðar

16:00-16:30        Ekið til baka að útsýnisstað á Miðmorgunshæð

16:30-17:00        Ekið að Flúðum

17:00-19:00        Ekið til Reykjavíkur

 

 

Tekið saman 8. september 2015

Stefán Gíslason