5. fundur faghóps 3, 08.10.2015

Fundargerð

Faghópur 3 um mat á samfélagslegum áhrifum virkjunarkosta 

í 3. áfanga rammaáætlunar um verndun og orkunýtingu landsvæða

8. október 2015 kl. 9:00

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, Skuggasundi 1

 

Mætt: Jón Ásgeir Kalmansson, Ásgeir Brynjar Torfason, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir og Magnfríður Júlíusdóttir.

Forföll: Páll Jakob Líndal


  1. Farið yfir fundargerð síðasta fundar.
  2. Bréf frá Heiðu Guðnýju Ásgeirsdóttur lagt fram.
  3. Rætt um kannanir sem gerðar hafa verið á áhrifum virkjunar og álversframkvæmda á Austfjörðum og á viðhorfum til virkjunar vindorku á Íslandi.
  4. Umræða um drög að lista yfir rannsóknarbreytur.
  5. Ákveðið að leita eftir upplýsingum frá Félagsvísindastofnun varðandi mögulegt samstarf um kannanir og rýnihópa.