32. fundur faghóps 2, 29.02.2016

Fundarfrásögn

Faghópur 2 í 3. áfanga rammaáætlunar um verndun og orkunýtingu landsvæða

32. fundur, 29.02.2016, 9:00-10:30

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu

Mætt: Anna Dóra Sæþórsdóttir (ADS), Áki Guðni Karlsson (ÁGK), Einar Torfi Finnsson (ETF), Guðni Guðbergsson (GG), Sigrún Valbergsdóttir (SV) og Sigþrúður Stella Jóhannsdóttir (SSJ) sem tók þátt í fundinum símleiðis.

Fjarverandi: Anna G. Sverrisdóttir (AGS), Sveinn Sigurmundsson (SS) og Sveinn Runólfsson (SR).

Fundarritari: ADS

  1. Fundur settur kl. 9:00.
  2. Lokaskýrsla: Gerðar voru smávægilegar viðbætur á lokaskýrslu. 
  3. Yfirferð mats á áhrifum virkjana á ferðamennsku og útivist: Ákveðið var að sækja um fjármagn til umhverfis- og auðlindaráðuneytisins til að kortleggja áhrif virkjana á viðföngin og þegar búið er að kortleggja þær þá að fara yfir niðurstöðurnar. AGS, SV og SSJ tóku að sér að fara yfir niðurstöðurnar ef leyfi fæst. Í kjölfarið myndi faghópurinn hittast og fara yfir ef það þarf að gera einhverjar breytingar. 
  4. Fundi slitið kl. 10:30.

 

ADS