25. fundur faghóps 2, 07.01.2016

Fundarfrásögn

Faghópur 2 í 3. áfanga rammaáætlunar um verndun og orkunýtingu landsvæða

25. fundur, 7.01.2016, 12:30-18:00

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu

Mætt: Anna Dóra Sæþórsdóttir (ADS), Anna G. Sverrisdóttir (AGS), Áki Guðni Karlsson (ÁGK), Einar Torfi Finnsson (ETF), Guðni Guðbergsson (GG), Sigrún Valbergsdóttir (SV), Sigþrúður Stella Jóhannsdóttir (SSJ), Sveinn Runólfsson (SR) og Sveinn Sigurmundsson (SS)

Gestur: Adam Hoffritz (AH).

Fundarritari: ADS

SR þurfti að yfirgefa fundinn kl. 15:30.

  1. Fundur settur kl. 12:30.
  2. Endurskoðun á viðföngum með hliðsjón af kortum úr landfræðilegum gagnagrunni. Lokið var við endurskoðun á virðismati á öllum ferðasvæðum.
  3. Hugmyndir ræddar um endurskoðun vogtalna.
  4. Fundi slitið kl. 18:00.

 

ADS