42. fundur faghóps 3

42. fundur í faghópi 3 um mat á samfélagslegum áhrifum virkjunarkosta, 17. nóvember 2023 kl. 8:30 – 9:30 á Teams.

Mætt: Hafsteinn Birgir Einarsson, Hjalti Jóhannesson, Jón Ásgeir Kalmansson og Sjöfn Vilhelmsdóttir.

Fundargerð

• Rætt um drög að skýrslu faghópsins varðandi mat á samfélagslegum áhrifum virkjunarkosta í neðri hluta Þjórsár. Ákveðið að senda drögin á verkefnisstjórn í dag en ganga frá samantekt á niðurstöðum í næstu viku.

• Rætt um skoðanakönnun á afstöðu íbúa til 8 vindorkukosta sem Félagsvísindastofnun mun gera fyrir faghópinn. Farið yfir texta sem lesinn er fyrir þátttakendur í rannsókninni. Einnig var ákveðið að fresta því að beina könnuninni til íbúa í nágrenni við vindorkukosti á Reykjanesskaga vegna jarðhræringanna þar og ástandsins í Grindavík.