40. fundur faghóps 3

40. fundur í faghópi 3 um mat á samfélagslegum áhrifum virkjunarkosta, 3. nóvember 2023 kl. 8:30 – 9:20 á Teams.

Mætt: Hafsteinn Birgir Einarsson, Hjalti Jóhannesson, Jón Ásgeir Kalmansson og Sjöfn Vilhelmsdóttir.

Fundargerð

• Rætt um skoðanakönnun á afstöðu íbúa til 8 vindorkukosta sem Félagsvísindastofnun mun gera fyrir faghópinn. Gert er ráð fyrir að hún fari af stað í næstu eða þarnæstu viku.

• Rætt um vinnu faghópsins varðandi mat á samfélagslegum áhrifum virkjunarkosta í neðri hluta Þjórsár. Hjalti og Sjöfn munu vinna að drögum að niðurstöðum faghópsins til næsta fundar.

• Ákveðið að næsti fundur verði föstudaginn 10. nóvember kl. 8:30 á Teams.