44. fundur faghóps 1, 09.11.2023

Fundarfrásögn

Fundur faghóps 1

Í 5. áfanga rammaáætlunar um verndun og orkunýtingu landsvæða (RÁ).

44. fundur – 9. nóvember 2023.

Fjarfundur

Mætt: Hafdís Hanna Ægisdóttir (HHÆ) formaður, Birna Lárusdóttir (BL), Edda Ruth Hlín Waage (ERW), Guðbjörg R. Jóhannesdóttir (GRJ), Guðný Zoëga (GZ), Jón Einar Jónsson (JEJ), Kristján Jónasson (KJ), Jón S. Ólafsson (JSÓ), Kristín Svavarsdóttir (KS)

Forföll: Ívar Örn Benediktsson (ÍÖB)

Fundarritari: BL

Fundur hófst kl.14

1. HHÆ greindi frá fundi verkefnisstjórnar þann 8. nóvember þar sem m.a. var rætt um Skrokkölduvirkjun og Kjalölduveitu.

2. BL og GZ kynntu gögn og matsvinnu fyrir menningarminjar v/ Hvanneyrardals- og Tröllárvirkjunar.

3. KJ kynnti gögn og matsvinnu fyrir jarðfræði v/ Garpsdals og Alviðru.

4. Fram fóru óformlegar umræður um áframhaldandi þróun á aðferðafræði vegna mats á verðmætum og áhrifum vindorkusvæða.

Fundi slitið kl. 16:15