29. fundur faghóps 2, 10.12.2020

Fundarfrásögn

Faghópur 2

4. áfangi rammaáætlunar um verndun og orkunýtingu landsvæða

29. fundur, 10.12 2020, kl. 13:15 – 15:00.

Haldinn í netheimum

Mætt: Anna Dóra Sæþórsdóttir (ADS), Anna G. Sverrisdóttir (AGS, kom á fundinn kl. 13:50), Guðmundur Jóhannesson (GJ), Guðni Guðbergsson (GG), Einar Torfi Finnsson (ETF), Ólafur Örn Haraldsson (ÓÖH), Sigþrúður Stella Jóhannsdóttir (SSJ) og Sveinn Runólfsson (SR).

Fundarritari: ADS


Fundur settur kl. 13:15

  1. Kynning á gögnum

  • ADS kynnti meginniðurstöður skýrslunnar: Viðhorf ferðaþjónustuaðila og útivistariðkenda til níu virkjunarhugmynda í 4. áfanga rammaáætlunar.

  • SR greindi frá samtölum sínum við bændur í nágrenni við Hamarsvirkjun

  • ETF greindi frá ferð sem hann fór fyrir hönd faghópsins á slóðir Vindheimavirkjunar

  1. Umræða um mat á Svartsengi

Rætt var um kynningu sem var haldin um stækkun Svartsengis 4. desember 2020. ETF mun gera drög að umsögn faghópsins og stefnt að því að afgreiða umsögn faghópsins í tölvupósti næstu daga.

  1. Val á virkjunum frá RÁ3 til samanburðar við RÁ4

ADS greindi frá hugmynd frá fundi verkefnisstjórnar þess efnis að hafa niðurstöður frá 3. áfanga rammaáætlunar með til samanburðar í mati virkjunarhugmynda í 4. áfanga. Niðurstaða faghóps 2 var að æskilegast væri að taka allar þær virkjunarhugmyndir sem voru teknar til mats í 3. áfanga.

  1. Skil faghópa til verkefnisstjórnar

ADS greindi frá að formaður verkefnisstjórnar hefði tilkynnt að lokaskil faghópanna til verkefnisstjórnar á niðurstöðum matsins skyldi vera 3. mars 2021.

  1. Mat á virði svæða

ADS greindi frá að búið væri að útbúa excel skjalið sem faghópurinn mun nota við matsvinnuna. Faghópurinn fór yfir matskvarðann og ákvað að halda öllu óbreyttu frá RÁ3. Með því móti verða niðurstöðurnar samanburðarhæfar.

  1. Önnur mál

  • ADS greindi frá að á næstu dögum myndi verkefnisstjórn RÁ4 óska eftir umsögn Ferðamálastofu varðandi gæði gagna eins og lög um rammaáætlun kveða á um.

  • ADS greindi frá að á síðasta fundi verkefnisstjórnar hefði verið kynning á vinnu við vatnatilskipun og að GG myndi fá frekari kynningu á henni í samfloti við faghóp 1.

  • ADS greindi frá hugmyndum frá faghópi 1 varðandi sameiginlegt rannsóknarverkefni faghópa 1, 2 og 3 varðandi áhrif vindorkuvera. Faghópur 2 tók vel í hugmyndina.

Fleira ekki rætt. Fundi slitið um kl. 15:00.