21. fundur faghóps 2, 18.05.2020

Fundarfrásögn

Faghópur 2

4. áfangi rammaáætlunar um verndun og orkunýtingu landsvæða

21. fundur, 18.05 2020, kl. 14:00 – 16:00.

Haldinn í netheimum

Mætt: Anna Dóra Sæþórsdóttir (ADS), Anna G. Sverrisdóttir (AGS), Guðmundur Jóhannesson (GJ), Guðni Guðbergsson (GG), Einar Torfi Finnsson (ETF), Ólafur Örn Haraldsson (ÓÖH), Sigþrúður Stella Jóhannsdóttir (SSJ) og Sveinn Runólfsson (SR).

David Christopher Ostman kortagerðarmaður RÁ4 var á fundinum, undir 1. dagskrárlið.

Fundarritari: ADS

Fundur settur kl. 14:00


  1. Ný ferðasvæði

Farið var yfir tillögur ETF að nýjum ferðasvæðum á Vesturlandi og Vestfjörðum og þær ræddar. Gerðar voru lítilsháttar breytingar sem David mun laga og hafa tilbúnar fyrir næsta fund. ETF mun móta tillögur fyrir Norðurland vestra fyrir næsta fund faghópsins.

  1. Kynningarfundir virkjunaraðila

Ræddar voru þær kynningar á virkjunarhugmyndum sem virkjunaraðilar héldu fyrir verkefnisstjórn og faghópa rammaáætlunar 13. og 14. maí. Faghópur 2 telur vanta ýmis konar upplýsingar varðandi útivist og ferðamennsku á áhrifasvæðum virkjananna á Vestfjörðum og á Austurlandi. Faghópurinn mun skrifa minnisblað fyrir verkefnisstjórn RÁ þar sem er gerð nánar grein fyrir þeim gögnum sem hópurinn þarf á að halda til að geta metið áhrif virkjananna á ferðamennsku og útivist.

Fleira ekki rætt. Fundi slitið um kl. 16:00