26. fundur faghóps 1, 29.09.2020

Fundarfrásögn

Faghópur 1 

í 4. áfanga rammaáætlunar um verndun og orkunýtingu landsvæða

26. fundur, 29. september 2020 kl. 13-14:30

Fjarfundur á Teams

FUNDARGERÐ

Mætt úr faghópi: Jón S. Ólafsson (JSÓ), Kristján Jónasson (KJ), Sólborg Una Pálsdóttir (SUP), Tómas Grétar Gunnarsson (TGG), Þorvarður Árnason (ÞÁ) og Ása L. Aradóttir (ÁLA) er ritaði fundargerð.

Aðrir: David C. Ostman (DCO), starfsmaður faghóps

Fundarfrásögn

  1. Farið yfir stöðu og helstu niðurstöður verkefna og vettvangsvinnu á vegum faghópsins. Einnig lögð drög að kynningu á sameiginlegum fundi stjórnar og faghópa 13. október; þau verða unnin áfram á Teams svæði hópsins.
  2. Rætt um stöðu gagna og vinnu við mat á virkjunarkostum. 
  3. Fjallað um bréf Orkustofnunar til framkvæmdaraðila vindorkukosta þar sem fram kemur að ekki er lengur beðið um sýnileikagreiningu eða sjónlínukort. Í framhaldi af því var rætt um mögulegar aðferðir við sýnileikagreiningu sem gætu verið samanburðarhæfar á milli virkjunarkosta.