Fréttasafn

Yfir 200 umsagnir bárust um drög að þingsályktun um rammaáætlun

14.11.2011

Síðustu 12 vikurnar hefur staðið yfir opið samráðs- og kynningarferli um drög að þingsályktun iðnaðarráðherra og umhverfisráðherra um verndun og nýtingu náttúrusvæða með áherslu á vatnsafl og jarðhitasvæði. Umsagnarferlinu lauk á miðnætti  og bárust um 200 umsagnir, en endanlegur fjöldi liggur ekki alveg strax fyrir þar sem enn geta verið umsagnir á leið í pósti.


Með rammaáætlun er mörkuð stefna um það hvaða virkjunarkostir komi til greina og hvaða svæði beri að friða og er markmiðið að ná framtíðarsýn í verndunar- og virkjanamálum og almennri sátt í þjóðfélaginu.


Þingsályktunardrögin sem voru til umsagnar byggja á viðamikilli vinnu verkefnisstjórnar 2. áfanga rammaáætlunar og faghópa hennar.


Nú munu umhverfisráðherra og iðnaðarráðherra fara yfir umsagnirnar og leggja í framhaldinu sameiginlega fram þingsályktunartillögu fyrir Alþingi sem hefur síðasta orðið um það hvernig þeim svæðum sem komu til mats verður raðað í nýtingarflokk, biðflokk eða verndarflokk.


Sjá má allar umsagnirnar sem bárust hér á vef rammaáætlunar.