Fréttasafn

Kynningarfundur verkefnisstjórnar rammaáætlunar

10.2.2023

Verkefnisstjórn rammaáætlunar boðar til opins kynningafundar um viðfangsefni sín. Fundurinn er haldinn í sal Þjóðminjasafns Íslands 15. febrúar kl. 10-12.

Á fundinum mun formaður verkefnisstjórnar rammaáætlunar gefa yfirsýn yfir þá virkjanakosti sem eru til umfjöllunar í rammaáætlun, auk þess að fjalla um vinnu sem fram hefur farið á vegum verkefnisstjórnar varðandi greiningar við mat á staðarvali vindorkukosta.

Sérfræðingar Landmælinga Íslands munu greina frá nýjum tækjum sem þróuð hafa verið til að miðla landupplýsingum um rammaáætlun og vinna með þær. Einnig munu formenn og fulltrúar faghópa kynna störf og áherslur faghópa rammaáætlunar í vinnu sinni.

Fundurinn verður aðgengilegur í beinu streymi og verður upptaka af honum gerð aðgengileg eftir á.

Kynningafundur-rammaaaetlunar-feb2023