Fréttasafn

Kynningarfundur verkefnisstjórnar rammaáætlunar

Opinn fundur í Öldu, 18.5. kl. 14-16

13.5.2022


Verkefnisstjórn rammaáætlunar (5. áfanga) boðar til opins kynningarfundar um stöðu vinnunnar miðvikudaginn 18. maí kl 14:00-16:00. Fundurinn verður haldinn í Öldu, Skúlagötu 4, og verður einnig aðgengilegur í beinu streymi.

Dagskrá

Setning
14:00-14:30 - Jón Geir Pétursson formaður verkefnisstjórnar kynnir stöðu vinnunnar.
14:30-15:20 - Formenn faghópa kynna vinnu hópanna:

  • Hafdís Hanna Ægisdóttir, formaður Faghóps 1 (náttúruverðmæti og menningarminjar) 
  • Anna Dóra Sæþórsdóttir, formaður Faghóps 2 (önnur auðlindanýting) 
  • Jón Ásgeir Kalmannsson, formaður Faghóps 3 (samfélagsleg áhrif) 
  • Páll Jensson, formaður Faghóps 4 (hagkvæmi og arðsemi)

15:20-16:00 - Umræður
Öll velkomin