41. fundur faghóps 3

41. fundur í faghópi 3 um mat á samfélagslegum áhrifum virkjunarkosta, 10. nóvember 2023 kl. 8:30 – 9:30 á Teams.

Mætt: Hafsteinn Birgir Einarsson, Hjalti Jóhannesson, Jón Ásgeir Kalmansson og Sjöfn Vilhelmsdóttir.

Fundargerð

• Rætt um fyrstu drög að skýrslu faghópsins varðandi mat á samfélagslegum áhrifum virkjunarkosta í neðri hluta Þjórsár. Hjalti og Sjöfn munu vinna drögin áfram til næsta fundar.

• Rætt um skoðanakönnun á afstöðu íbúa til 8 vindorkukosta sem Félagsvísindastofnun mun gera fyrir faghópinn. Nú er gert ráð fyrir að hún fari af stað í næstu viku og taka muni um mánuð að framkvæma hana.

• Ákveðið að næsti fundur verði föstudaginn 17. nóvember kl. 8:30 á Teams.