59. fundur faghóps 2, 17.1.2024

Fundarfrásögn

Faghópur 2

5. áfangi rammaáætlunar um verndun og orkunýtingu landsvæða

59. fundur, 17.01.2024, kl. 14:00-17:00

Fundur haldinn í netheimum

Mætt: Anna Dóra Sæþórsdóttir (ADS), Anna G. Sverrisdóttir (AGS), Bryndís Marteinsdóttir (BM), Einar Torfi Finnsson (ETF), Guðni Guðbergsson (GG), Hjörleifur Finnsson (HF), Sigþrúður Stella Jóhannsdóttir (SSJ) og Unnur Svavarsdóttir (US).

Fundarritari: SSJ

Fundur settur kl. 14:00

1. Mat á áhrifum virkjunarkosta

Unnið að mati á áhrifum virkjunarkosta á ferðasvæði.

2. Kort í lokaskýrslu

BM sýndi mismunandi útgáfur af Íslandskortum með ferðasvæðum sem Landmælingar Íslands (LMÍ) höfðu útbúið fyrir faghópinn. Ein útgáfan valin fyrir lokaskýrslu.

Fundi slitið kl. 17:00