52. fundur faghóps 2, 6.12.2023

Fundarfrásögn

Faghópur 2  

5. áfangi rammaáætlunar um verndun og orkunýtingu landsvæða 

52. fundur, 06.12.2023, kl. 14:30-16:30

Fundur haldinn í netheimum

 Mætt: Anna Dóra Sæþórsdóttir (ADS), Bryndís Marteinsdóttir (BM), Einar Torfi Finnsson (ETF), Hjörleifur Finnsson (HF), Sigþrúður Stella Jóhannsdóttir (SSJ) og Unnur Svavarsdóttir (US)

Anna G. Sverrisdóttir (AGS) og Guðni Guðbergsson (GG) boðuðu forföll

Fundarritari: SSJ

 Fundur settur kl. 14:30

  1. Rannsókn Maskínu um viðhorf ferðamanna til uppbyggingar vindorkuvera

ADS kynnti helstu niðurstöður rannsóknar sem Maskína vann fyrir faghópinn og fjallar um viðhorf ferðamanna til uppbyggingar vindorkuvera á Íslandi. 

  1. Mat á áhrifum virkjunarkosta

Unnið að mati á áhrifum virkjunarkosta á ferðasvæði.

Fundi slitið kl. 16:30