Vettvangsferð á Reykjanes, 03.06.2015

Skýrsla

Faghópar 1 og 2 fóru í kynnisferð um virkjunarsvæði á Reykjanesskaga miðvikudaginn 3. júní sl.

Þátttakendur:

# Nafn Aðild Þátttaka
1 Skúli Skúlason Faghópur 1 Allan tímann
2 Ása Lovísa Aradóttir Faghópur 1 Allan tímann
3 Birna Lárusdóttir Faghópur 1 Allan tímann
4 Kristján Jónasson Faghópur 1 Allan tímann
5 Sólveig K. Pétursdóttir Faghópur 1 Allan tímann
6 Tómar Grétar Gunnarsson Faghópur 1 Allan tímann
7 Anna Dóra Sæþórsdóttir Faghópur 2 Allan tímann
8 Anna G. Sverrisdóttir Faghópur 2 Allan tímann
9 Einar Torfi Finnsson Faghópur 2 Allan tímann
10 Guðni Guðbergsson Faghópur 2 Allan tímann
11 Sigþrúður Stella Jóhannsdóttir Faghópur 2 Allan tímann
12 Sigrún Valbergsdóttir Faghópur 2 Allan tímann
13 Sveinn Runólfsson Faghópur 2 Allan tímann
14 Herdís Helga Schopka UAR Allan tímann
15 Erla Björk Þorgeirsdóttir Orkustofnun Allan tímann
16 Snorri Baldursson Landvernd Allan tímann
17 Edda Ruth Hlín Waage Verkefni um landslagsgreiningu Allan tímann
18 Guðbjörg R. Jóhannesdóttir Verkefni um landslagsgreiningu Allan tímann
19 Adam Hoffritz Verkefni um landslagsgreiningu Allan tímann
20 Reynir Vikar Guðmundur Tyrfingsson ehf. Bílstjóri

 

Auk þess tóku þátt í ferðinni:

# Nafn Staða Þátttaka
21 Ásbjörn Blöndal Forstjóri HS Orku Ca. 10:30-16:30
22 Guðmundur Ómar Friðleifsson Yfirjarðfræðingur HS Orku Ca. 10:30-16:30
23 Ármann Halldórsson Sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs Grindavík, Eldvörp
24 Siggeir F. Ævarsson upplýsinga- og skjalafulltrúi Grindavík, Eldvörp

 

Eftirtaldir virkjunarkostir voru skoðaðir:

Eftirfarandi virkjunarkostir, sem báðir eru til umfjöllunar hjá faghópum 3. áfanga rammaáætlunar, voru skoðaðir:

  • R3265A Trölladyngja
  • R3267A Austurengjar, Krísuvík

Auk þess skoðaði hópurinn R3263 Eldvörp, sem eru í orkunýtingarflokki.


Leiðarlýsing:

Miðvikudagur 3. júní:

Lagt var upp frá BSÍ kl. 10:00 og ekið sem leið lá út á Reykjanes.  Ásbjörn Blöndal, forstjóri HS Orku og Guðmundur Ómar Friðleifsson, yfirjarðfræðingur HS Orku, bættust í hópinn við afleggjara af Reykjanesbraut við Vatnaborgir. Ekið var að Trölladyngju og að borholum TR-01 og TR-02. Þaðan var ekið til baka út á Reykjanesveg og inn á veg 42 í átt að Kleifarvatni. Beygt var við Vatnsskarð inn á Djúpavatnsleið og ekið að Köldunámum þar sem gengið var upp í skarðið og horft yfir Folaldadal. Eftir kaffipásu var svo ekið til baka að Vatnsskarði og Krýsuvíkurleiðina meðfram Kleifarvatni og Suðurstrandarveg í Grindavík. Hádegisverður var snæddur í Sjómannastofunni Vör í Grindavík kl. 14. Eftir matinn slógust í för með hópnum þeir Ármann Halldórsson, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs í Grindavík og Siggeir F. Ævarsson, upplýsinga- og skjalafulltrúi Grindavíkur. Ekið var um Norðurljósabraut í Eldvörp, að holu EG-02, og fyrirhugaðar framkvæmdir á svæðinu ræddar. Fulltrúum Grindavíkurbæjar var svo ekið til baka til Grindavíkur og síðan hélt hópurinn sem leið lá aftur til Reykjavíkur, með örstuttu stoppi til að skila fulltrúum HS Orku þar sem þeir höfðu komið inn í rútuna um morguninn. Ferðinni lauk á BSÍ um kl. 17.

Sérfræðingar í faghópum tóku virkan þátt í leiðsögn um þau svæði sem farið var um og kynnti hver sitt sérsvið.


 

Tekið saman 21. september 2015

Herdís Helga Schopka