Fréttasafn

Verkefnisstjórn 4. áfanga rammaáætlunar skipuð

10.4.2017

Í frétt á vef umhverfis- og auðlindaráðuneytisins þann 6. apríl sl. var greint frá skipun nýrrar verkefnisstjórnar 4. áfanga rammaáætlunar. Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, skipaði verkefnisstjórnina. Nefndin er ráðherra til ráðgjafar við undirbúning að gerð tillagna fyrir rammaáætlun. 

Ráðuneytið leggur áherslu á að í byrjun starfsins taki verkefnisstjórn saman og kynni þá aðferðafræði sem hún hyggist beita í 4. áfanga. Þar verði sérstaklega höfð til hliðsjónar reynsla af fyrri áföngum í vinnu verkefnisstjórnar. Lögð er sérstök áhersla á að verkefnisstjórnin starfi með þeim hætti að tryggt sé að almenningur hafi virka aðkomu og félagasamtök taki þátt í öllu starfi í tengslum við rammaáætlun. 

Verkefnisstjórn er ætlað að skila tillögum sínum til ráðherra innan fjögurra ára. Hún er skipuð sex fulltrúum og jafn mörgum til vara: 

Skipuð án tilnefningar:

  • Guðrún Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Stofnunar Sæmundar fróða, formaður,
  • Magnús Guðmundsson, forstjóri Landmælinga Íslands, varamaður formanns,

  • Þóra Ellen Þórhallsdóttir prófessor, aðalfulltrúi,
  • Jórunn Harðardóttir, framkvæmdastjóri úrvinnslu- og rannsóknasviðs Veðurstofu Íslands, til vara.

Tilnefnd af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti:

  • Guðrún A. Sævarsdóttir, forseti tækni- og verkfræðideildar HR, aðalfulltrúi,
  • Ágúst Sigurðsson, sveitarstjóri Rangárþings ytra, til vara,
  • Helgi Jóhannesson, hæstaréttarlögmaður, tilnefndur af atvinnu- og nýsköpunarráðherra, aðalfulltrúi,
  • Laufey Jóhannsdóttir, fyrrverandi sveitarstjóri í Hvalfjarðarsveit, til vara. 

Tilnefnd af mennta- og menningarmálaráðuneyti:

  • Þórgnýr Dýrfjörð, framkvæmdastjóri hjá Akureyrarstofu, aðalfulltrúi,
  • Ragnheiður H. Þórarinsdóttir, sérfræðingur í mennta- og menningarmálaráðuneyti, til vara.

Tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga:

  • Elín R. Líndal, sveitarstjórnarfulltrúi í Húnaþingi vestra, aðalfulltrúi,
  • Guðjón Bragason, sviðsstjóri hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, til vara.

Starfsmaður verkefnisstjórnarinnar er Herdís Helga Schopka, sérfræðingur í umhverfis- og auðlindaráðuneyti.